Skip to main content

Tengja SUMO varmadælu við WIFI

Byrjum á smá undirbúning:

  • Öryggisgerð beinis (routers) verða að vera WPA2.
    Það er hefðbundið og sést í stillingum fyrir heimanetið í síma eða tölvu.
  • Beinar senda yfirleitt á tveim tíðnum; 2,4 GHz og 5 GHz.
    Varmadæla tengist alltaf 2,4 GHz tíðninni.
  • Hafðu tröppur við höndina til að komast að innitæki.
  • Settu upp MELCLoud appið í símann og búðu til reikning með lykilorði.
  • Ef skipt er um beini (router), tengingum breytt eða tenging mistekst gæti þurft að endursetja varmadælu. Sjá neðst.

1. Staðsetjið WI-FI eininguna í innitækinu

  • Opnið framhlíf á innitækinu. WI-FI einingin er staðsett á bak við lok ofarlega hægra megin.
  • Smellið upp lokinu til að sjá NET ljósið sem verður vísað í síðar í uppsetningu.
  • Takið einnig eftir QR kóðanum á WI-FI einingunni.

 

2. Undirbúið varmadæluna til að tengjast

    • Slökkvið á varmadælunni með fjarstýringunni með því að ýta á OFF/ON takkann.
    • Bíðið þar til hún hefur slökkt á sér, tekur fáeinar sekúndur.

3. Setjið varmadæluna í tengiham

  • Haldið + TEMP takkanum inni í ca. 5 sekúndur.
  • Veldu ‾1 með því á ýta á + eða – TEMP takkann.

4. Kveikið á varmadælunni í tengiham

  • Kveikið aftur á varmadælunni með fjarstýringunni og fylgist með hvort loftsíuljósið kvikni (þrjár stjörnur) blikki síðan og gefi frá sér stutt hljóðmerki.

5. Innskráning á net varmadælu

  • Opnið yfirlit yfir nettengingar í símanum og smellið á netið sem varmadælan varpar frá sér. Heiti þess er það sama og stendur fyrir aftan SSID: og ætti að byrja á ME- með kóða fyrir aftan.
  • Notið lykilorðið fyrir aftan KEY: og samþykkið.
  • Þegar síminn tengist varmadælu gætu komið skilaboð um að nettenging sé ekki til staðar („No internet connection“) en það er fullkomlega eðlilegt.

6. Opnið heimasíðu varmadælu til að skrá heimanetið

  • Opnið vafrara í símanum, t.d. Google Chrome (Android) eða Safari (Iphone) og sláið inn eftirfarandi slóð:

192.168.11.1/network

  • Einnig er hægt að skanna QR kóðann á WI-FI einingunni til að opna heimasíðu varmadælunnar.
  • Við það opnast vefsíða í varmadælunni þar sem heimanetið er skráð (sjá mynd).
  • Í Network name er fellilisti sem sýnir önnur net. Finnið heimanetið í listanum. Að óbreyttu er það aftan á beini (router).
  • Skráið lykilorðið fyrir heimanetið í Network password. Að óbreyttu er það aftan á beini (router).
  • Samþykkið neðst og þá tengist varmadælan heimanetinu. Loftsíuljósið (þrjár stjörnur) ætti að loga stöðugt í 5 sekúndur og varmadælan að gefa frá sér eitt stutt hljóðmerki. Gæti tekið smá tíma.

6. Varmadælan sett upp með MELCloud

  • Opnið MELCloud appið.
  • Leitið að varmadælunni með því að slá inn MAC kóðann á WI-FI einingunni. Mögulega vill appið fleiri upplýsingar.
  • Nú ætti varmadælan að vera orðin aðgengileg með MELCloud appinu.

Hér er stutt myndband af uppsetningu á sænsku.

Frumstilla WIFI eininguna á RW og RZ SUMO varmadælu

ATH: Við frumstillingu hverfa allar uppsetningar og er þessi aðgerð óafturkræf.

Ef einhverra hluta vegna ekki hefur tekist að setja upp tengingu eða heimanet breyst þá gæti þurft að frumstilla WIFI eininguna til að hefja nýtt uppsetningarferli.

  • Slökkvið á varmadælunni með OFF/ON takkanum á fjarstýringunni.
  • Haldið mínus-TEMP takkanum inni í ca. 5 sekúndur.
  • Veljið _2 með því að ýta á + eða – TEMP takkana.
  • Ýtið á OFF/ON takkanum á fjarstýringunni og þá ætti að heyrast 3 stutt hljóðmerki og þá ætti varmadælan að vera frumstillt.