EW7222 stjórnstöðin frá Eliwell er með einn inngang sem getur tengst PT100 hitanema, 0-1V, 0-5V, 0-10V, 0-20mA eða 4-20mA. Svo eru þrír relay útgangar, tveir hliðrænir útgangar og einn stafrænn útgangur.
EW7222 er með innbyggðan PID regli svo hann getur stjórnað hvers konar drifi fyrir loka og önnur tæki.
EW7222 er öflug alhliða stjórnstöð sem er einföld í notkun.

