Indura birgir okkur upp af suðufittings og flöngsum, bæði í svörtu og ryðfríu ásamt ryðfríum skrúfuðum fittings. Fengum minnkanir, suðulok, hné, té, flangsa og skrúfaðan fittings ásamt nokkrum sérpöntunum.
SANHA framleiðir m.a. fittings fyrir koparrör, bæði í mm og tommum sem henta almennum freonkerfum sem og CO2 kerfum. Einnig nokkuð af efnum fyrir slaglóðun.
HME er okkar birgi með koparrör, í mm fyrir almenna notkun, tommum fyrir CO2, svo afglóðuð eirrör (mjúk) og einangruð rör fyrir varmadælur og kælikerfi.
Fengum m.a. Wally 100, Saga Standard 200 og 300 og okkar nývinsæla Saga Coil. Ansi margir að kljást við skömmtun á heitu vatni. Þá er Saga Coil málið fyrir heitt neysluvatn.
Vorum að fá fyrstu sendinguna frá Cinderella. Fjögur Premium brennslusalerni þar sem tvö eru þegar seld, eitt fer á lager og eitt sem við munum stilla upp í versluninni fyrir gesti og gangandi að skoða. Verið velkomin í kaffi og spjall.