Lýsing
| Gerð | Stærð | Framleiðandi | Vörunúmer |
|---|---|---|---|
| TC35L | 35L | Mitsubishi Electric | 0171368 |
| HF TIP´100L/A | 100L | Borø | 0171900 |
| TIDA-300L/A | 300L | Borø | 0171904 |
| TIDA-500L/A | 500L | Borø | 0171906 |
Hringrásardæla innitækis er almennt fullfær um að hringrása vökva um gólfhitakerfi eða ofnakerfi. Ef hitastýringin á kerfunum getur valdið því að rennslið skerðist mikið, t.d. þegar hitaþörf er lítil, þá þarf safnkút á kerfið. Annars getur komið villa á varmadæluna og hún stöðvast. Þetta á t.d. við um ofnakerfi með túrloka og gólfhitakerfi sem er stjórnað með mótorlokum frá hitastillum í viðkomandi rými. Varmadælan hringrásar vatni um safnkútinn með eigin hringrásardælu en svo er auka hringrásardæla sem sér hitakerfinu fyrir rennsli.
Stærð safnkúts ræðst mikið til af stærð og afkasta hitakerfis.
https://www.boroe.com/wp-content/uploads/TIP_35_100_120_forsaljningsblad_2022.pdf







