MSZ-RZ SUMO

Þegar það besta verður enn betra!

Arftaki öflugustu loft í loft varmadælunnar frá Mitsubishi Electric er orðin að veruleika.
Óskert afköst niður í allt að -25°C og ámóta afköst við -35°C eins og hefðbundnar varmadælur við -20°C, þökk sé sérstakri háhitatækni.
Afköst sem fáar aðrar varmadælur geta státað af.

  • Háhitatækni (Hyper Heating) tryggir örugga keyrslu allt niður í -35°C.
  • WIFI tengjanleg við beini (router) og stýranleg með MELCloud appinu.
  • Plasma Quad sía sem brýtur niður ryk, örverur og aðrar skaðlegar agnir í inniloftinu.
  • Sérstök lyktareyðandi sía sem fjarlægir myglu- og tóbakslykt.
  • Dual Barrier Skin er sérstök áferð á flötum varmadælunnar sem hrindir frá sér ryki og óhreinindum.
  • I-SEE umhverfisskanni sem jafnar hitann í rýminu án þess að valda ónæði.
  • Þráðlaus fjarstýring með alltof mörgum möguleikum.
  • Náttúrulegur kælimiðill (R290) sem er með þeim vistvænni í heiminum í dag.
  • Einstaklega hljóðlát og sparneytin í rekstri, þökk sé hárri nýtni.
  • Gerð sérstaklega fyrir kalt loftslag og hentar því einstaklega vel á Íslandi.
  • Sérstök afhrímingartækni sem styttir afhrímingartímann og lengir hitunartímann.

Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar

Lýsing

Þrjár stærðir af SUMO varmadælunni í boði;

SUMO Max afköst [kW]
Gerð +7°C -15°C -25°C SCOP
MSZ-RZ35 7,0 5,3 4,0 5,2 / A+++
MSZ-RZ50 8,7 7,0 6,0 4,7 / A++

SCOP = Seasonal Coefficient of Performance (Meðalársnýtni)

vörumerki

Mitsubishi Electric

Þér gæti einnig líkað við…

  • MXZ-2F Multisplit

    MXZ-2F Multisplit

  • MSZ-FT

    MSZ-FT

  • MFZ-KW

    MFZ-KW

  • Mitsubishi Geodan 11kW vatn í vatn varmadæla með 170l neysluvatnskút

    Mitsubishi Geodan 11kW vatn í vatn varmadæla með 170l neysluvatnskút