Skjólhús fyrir Ecodan varmadælu
Skjóhús fyrir nýju kynslóð ECODAN varmadæla.
Skjólhúsið er í raun hlífar sem eru festar utan á útitækið og hlífa því gegn veðri og vindum. Skjólhús dregur verulega úr þörf á afhrímingu sem aftur eykur nýtni varmadælunnar til muna.
Sama gerðin passar á allar ECODAN E kynslóðina frá 8 kW upp í 14 kW.











