Skip to main content

Tengja varmadælu við heimanetið

Þessi uppsetning gildir fyrir eftirfarandi varmadælur með MAC-597 WIFI einingu.

MAC-597 þekkist á auðri framhlið en er með öllum nauðsynlegum upplýsingum á bakhlið. Ef hún er föst í tækinu þá snýr bakhliðin með upplýsingunum út að notanda.

Byrjum á smá undirbúning:

  • Öryggisgerð beinis (routers) verða að vera WPA2. Það er hefðbundið og sést í stillingum fyrir heimanetið í síma eða tölvu.
  • Beinar senda yfirleitt á tveim tíðnum; 2,4 GHz og 5 GHz. Varmadæla tengist alltaf 2,4 GHz tíðninni.
  • Gott er að hafa lykilorðið klárt að þráðlausa netinu þegar spurt er um það í appinu.
  • Hafðu tröppur við höndina til að komast að innitæki og mögulega að útitæki líka.
  • Settu upp MELCLoud HOME appið í símann og búðu til reikning með lykilorði.

1. Myndbandið sýnir uppsetningu.

  • Fyrir loft í vatn og vatn í vatn varmadælu veljið WIFI interface. Það byrjar strax í upphafi myndbandsins.
  • Fyrir loft í loft varmadælu, veljið Built-in interface. Það byrjar eftir 1:44 mínútur.
  • Það getur verið að appið vilji fá ýtarlegar upplýsingar um bæði inni- og útitækið svo þegar þetta byrjar er betra að hafa birtu og betra veður.
  • Fylgið leiðbeiningum.