Skip to main content

Tengja varmadælu við heimanetið

Þessi uppsetning gildir fyrir eftirfarandi varmadælur með MAC-587 WIFI einingu.

MAC-587 þekkist á ljósaröð og tveim hnöppum á framhlið.

Byrjum á smá undirbúning:

  • Öryggisgerð beinis (routers) verða að vera WPA2. Það er hefðbundið og sést í stillingum fyrir heimanetið í síma eða tölvu.
  • Beinar senda yfirleitt á tveim tíðnum; 2,4 GHz og 5 GHz. Varmadæla tengist alltaf 2,4 GHz tíðninni.
  • Hafðu eitthvað oddmótt við höndina, t.d. penna til að ýta á takka á WIFI einingu innitækis.
  • Hafðu tröppur við höndina til að komast að innitæki.
  • Settu upp MELCLoud appið í símann og búðu til reikning með lykilorði.
  • Ef skipt er um beini (router), tengingum breytt eða tenging mistekst gæti þurft að endursetja varmadælu. Sjá neðst.

1. Náðu í WIFI eininguna

  • Opnið framhlíf innitækis og staðsetjið WIFI eininguna.
  • Takið WI-FI eininguna út úr vasanum (er í snúru) og skoðaðu ljósaröðina við brúnina á framhliðinni.
  • Aðeins UNIT ljósið ætti að blikka hægt sem þýðir að hún er í frumstillingu.
  • Ef ekki þá þarf að endursetja eininguna (sjá neðar).

2. Setjið Wifi eininguna í tengiham

  • Notið oddmjóan hlut til að halda MODE takkanum niðri í 6-8 sekúndur.
  • Þá ætti gula MODE ljósið að byrja að blikka á 5 sekúndna fresti. Þá er varmadælan komin í tengiham.

3. Innskráning  á net varmadælu

  • Opnið yfirlit yfir nettengingar í símanum og smellið á netið sem varmadælan varpar frá sér. Heiti þess kemur fram á bakhlið WI-FI einingar eftir SSID og ætti að byrja á ME, bandstrik og svo kóði.
  • Smellið á netið til að tengjast og notið lykilorðið sem er á eftir KEY á bakhlið WIFI einingar.
  • Þegar síminn tengist varmadælu gætu komið skilaboð um að nettenging sé ekki til staðar („No internet connection“) en það er fullkomlega eðlilegt.

4. Tengjast varmadælunni

  • Opnið vafrarann í símanum t.d. Safari (Iphone) eða Chrome (Google) og sláið inn eftirfarandi slóð fyrir vefsvæði (efst):

http://192.168.11.1/network

  • Síminn ætti nú að opna heimasíðu á varmadælunni þar sem beðið er um upplýsingar til að tengjast beini (Router) . Þessar upplýsingar eru að finna á beini ef þeim hefur ekki verið breytt.
  • Neðst á síðunni er hnappur til að samþykkja.

5. Staðfestu tengingu varmadælu við heimanetið

  • Þegar NET og UNIT ljósin blikka á ca. 5 sekúndna fresti hefur tekist að tengja varmadæluna við heimanetið. Sýnið þolinmæði því þetta gæti tekið smá tíma.

6. Setja upp varmadæluna í appinu

Myndbandið sýnir allt ferlið, hvernig á að tengja varmadæluna við heimanetið og hvernig á að setja varmadæluna upp í MELCloud appinu.

Það getur verið að appið vilji fá ýtarlegar upplýsingar um bæði inni- og útitækið svo þegar þetta byrjar er betra að hafa birtu og betra veður.

  • Fyrst er sýnt hvernig hægt er að nota WPS á beini til að tengja varmadælu við heimanetið en það hefur ekki reynst vel svo best er að sleppa því.
  • Eftir 1 mínútu og 18 sekúndur byrjar uppsetning sem sýnd er hér að ofan og virkar.
  • Eftir 3 mínútur og 20 sekúndur er sýnt hvernig á að endurstilla nettengingu varmadælu.
  • Eftir 4 mínútur og 10 sekúndur er sýnt hvernig MELCloud appið er sett upp og varmadæla tengt við.

Frumstilla WIFI einingu varmadælu

ATH: Við frumstillingu hverfa allar uppsetningar og er þessi aðgerð óafturkræf.

Ef einhverra hluta vegna ekki hefur tekist að setja upp tengingu eða heimanet breyst þá gæti þurft að frumstilla WIFI eininguna til að hefja nýtt uppsetningarferli.

  • Notið oddmjóan hlut til að halda MODE takkanum inni í rúmlega 10 sekúndur.