Skip to main content

Gott að vita um gegnumstreymishitara

Er heimtaugin í hættu?

Þar sem rafbílum fer fjölgandi getur verið freistandi að hlaða í tíma og ótíma.
Gegnumstreymishitari er afar orkufrekur notandi í notkun. Hann gæti tekið allt að 80% af heimtaug þegar mest lætur. Þá er ekki skynsamlegt að hlaða rafbíl á sama tíma. Ella gæti heimtaug slegið út.

Er hætta á óhreinindum?

Í gegnumstreymishiturum eru viðkvæm mælitæki. Auk þess eru síur í þeim til varnar. Ef þær stíflast er töluverð aðgerð að hreinsa þær. Best er að hafa góða síu á vatnsinntaki hússins.
Til eru mjög fínar síur með glærum botni til að fylgjast með uppsöfnun óhreininda. Allt fínna en 300 míkron er gott.

Er hætta á langtímanotkun?

Þegar stórir gegnumstreymishitarar eru notaðir til að fylla heitan pott tekur það allt að 2 klukkustundir. Við svona langa samfellda notkun geta raflagnir hitnað sem aftur veldur hættu á íkveikju.
Því mælum við með að raflagnir séu næsta stærð fyrir ofan ráðleggingar framleiðanda. Ef framleiðandi ráðleggur 6q mælum við með 10q.

Er sjálfvarið í samræmi við afköst?

Suma gegnumstreymishitara þarf að stilla á ákveðin hámarksafköst sem skal endurspegla sjálfvarið sem hann er tengdur við. Það þarf að gera strax þegar kveikt er á honum í fyrsta sinn eftir uppsetningu.
Ef ekkert er gert, fer gegnumstreymishitarinn á verksmiðjustillingu sem almennt er lægra en hámarkið. Það er hægt að breyta hámarksafköstum eftirá en krefst ákveðinnar þekkingar og varúðar.

ATH: Flestir gegnumstreymishitarar geta hleypt meira vatnsmagni í gegnum sig en þeir ráða við að hita. Þá kemur einfaldlega kaldara vatn. Á sumum gegnumstreymishiturum er hægt að takmarka vatnsrennslið með lokum við inntakið en svo eru til hitarar með sjálfvirkan hemil á vatnsrennsli til að halda uppi hita.