Skip to main content

Tengja varmadælu við heimanetið

Tvenns konar WIFI einingar eru í gangi

Á WIFI einingu varmadælu er hægt að lesa hvaða kynslóð hún er og uppsetning fer eftir því.

MAC-587 er eldri kynslóð WIFI einingar í varmadælum en MAC-597 er nýja kynslóð WIFI einingar. Það er hægt að lesa á einingunni í tækinu hvor kynslóðin er í varmadælunni.

Hér að neðan eru svo leiðbeiningar fyrir hvora kynslóð til að tengja varmadæluna við þráðlaust

MAC-587

MAC-587 er þriðja kynslóð WI-FI eininga sem er búin að vera við lýði í nokkuð mörg ár. Hún er að finna í flestum Mitsubishi Electric varmadælum í dag.

Ef þín varmadæla er með þessa WIFI einingu, smelltu á myndina til að fara í uppsetningarleiðbeiningar.

MAC-597

MAC-597 er fjórða og nýjasta kynslóð WIFI eininga fyrir Mitsubishi Electric varmadælur og sást fyrst í varmadælum frá okkur haustið 2025.

Ef þín varmadæla er með þessa WIFI einingu, smelltu á myndina til að fara í uppsetningarleiðbeiningar.