Tengi: 1/2″ fyrir aðgang að heitu vatni t.d. fyrir hita- eða þrýstimæli eða hringrásarkerfi.
Straumkapall: Schuko tengill m.jörð
Einstaklega góð einangrun
Skilar heitu neysluvatni þrefalt fyrr en SAGA STANDARD án þess að taka meiri straum. Ofar í kút er auka hitald sem hitar minna rúmmál og er nær úttaki. Það flýtir fyrir heitu vatni. Þegar kjörhita er náð að ofan, skiptir stýringin yfir á neðra hitald. Bæði hitöldin eru aldrei í gangi samtímis svo straumtakan er sú sama og fyrir STANDARD.
Tilbúinn fyrir OSO-CHARGE™ stýringu sem sér um að hita vatnið þegar orkuverð er lægra, t.d. að næturlagi. Eitthvað sem mun, að öllum líkindum, verða að veruleika hjá raforkusölum með tilkomu snjallmæla.
Með blöndunarloka sem getur stillt heita vatnið neðar en í hitakút. Það drýgir heita vatnið, verndar lagnir og dregur úr hættu á húðbruna.